Þér er boðið að taka þátt í BLUE INVITE sem fram fer fimmtudaginn 21. maí nk. á Hólmsvelli í Leiru.

Leikið verður samkvæmt fjögurra manna Texas Scramble fyrirkomulagi. Mæting er kl. 11:15 og ræst verður út af öllum teigum samtímis kl. 12:00.

Þátttakendum verða boðnar léttar veitingar til að njóta á meðan á leik stendur, bæði í fljótandi og föstu formi. Að móti loknu fer fram verðlaunaafhending þar sem boðið verður upp á eðal hamborgara og drykki.

Við mælum með að skrá sig sem fyrst þar sem þáttakendafjöldi er takmarkaður.
Við munum bjóða upp á rútuferðir til og frá Keflavík. Vinsamlegast skráið í skjalið ef þið ætlið að nýta það.

Við hlökkum svakalega til að taka á móti þér!
Skráning fer fram hér fyrir neðan.

Vinsamlegast athugaðu að þetta boð er aðeins ætlað þér og er ekki til áframsendingar.

Allar nánari upplýsingar hjá kristjan@blue.is.

BLUE INVITE

Vinsamlegast fylltu inn í viðeigandi reiti hér fyrir neðan